Ekki brást veðurblíðan mér hérna fyrir norðan

En hana má nýta til ýmissa hluta, t.d. alltaf klassísk ástæða til að fara í Brynjuísbúðina.. Svo áttum við Yngvi góðan systkinadag í gær, en ég dró kallinn með mér á Súlur. Það reyndist heilmikill labbitúr í leðjusvaði og snjó (á stutturunum og berhent) en á toppinn fórum við! Heiti potturinn var góður á eftir. Yngvi var fljótur að ná sér í freknurnar og reyndar aðeins meira til, brunarústir! En dagsverkið var annars gott..
Í morgun byrjaði ég daginn á nýsoðnu gæsareggi og rjúkandi góðum kaffibolla úr nýju kaffimaskínunni hans pápa, ekki slæmt það. Tók svo hjólatúr út í Kjarnaskóg (reyndi að villast ekki mikið í nýja hverfinu, það sem menn virðast ætla að byggja hérna fram í rauðan dauðann) og fékk mér labbitúr þar, hef e-ð
urge fyrir að fara í handahlaup þegar ég sé græn tún, lét það eftir mér þangað til mig fór að svima...
Tók ekkert ritgerðartengt með mér, bara saklausir frídagar hérna,yndi. Annars skilaði seinasta einkuninn sér loksins í gær, nokk sátt með allt saman þar. Farin að gera e-ð sniðugt