KANNSKI BLOGG
Klukkan
Myndir
05.05.2005 14:57:58 / IngaG

Home sweet home

Svona til að byrja á byrjuninni tá var gott og gaman að fréttaf Edinborgardvölinni. Það besta var að sjálfsögðu að hitta Auði eftir fleiri fleiri mánuði og það var bara eins og i gamla daga:) Mestur tíminn fór i að dúllast með Kjartann, litla engilinn sem hún er að passa, svo var auðvitað kikt i búðir og lika bió. Fórum lika einu sinni á djammið, en það öh, varð sonna soltið mis, við Lilja áttum stórleik og ég þakka fyrir að hafa komist heim..
Lox rann upp 2. maí, heimfarardagurinn. Tíminn er svo skrítið fyrirbæri sem mar skilur ekki..
En AAAH hvað tað er nú ljúft að vera komin aftur á klakann sem reyndar tók á móti mér með hagléli og roki, samur við sig blessaður. En hvað um það. Í tessum skrifuðu orðum er ég meirað segja á Hamarstígnum á Akureyrinni. Búin að knúsa flesta, heyra slúður, ráða mig i sumarvinnu, smakká ýmislegu íslensku svo sem ýsu, skúffuköku, skyri, flatbrauði m/reyktum silla og þamba vatn i litra tali, Og auðvitað heldur litli bróðir auðvitað áfram að stækka og ég varð að játa jafntefli okkar i krumlu.. og sjómann.. tek hann i slag á eftir! Svo var ég að heyra júrólagið okkar, hmm ok, huxaði ég en núna get ég bara ómögulega munað hvernig það var..
Oh, leiðinlegu íslensku kommu stafir.. En huriði, ætlað skreppa og klína smá málningu á veggina i nýju íbúðinni hans Yngva.. Ses;)

» 38 hafa sagt sína skoðun