KANNSKI BLOGG
Klukkan
Myndir
04.12.2008 21:16:01 / IngaG

Atvinnuleysi á krepputímum

Það eru erfiðir tímar, það er atvinnuþref - Það má nú segja að þetta hafi reynst versti tíminn til að taka sér pásu frá námi og ætla sér af alvöru út á vinnumarkaðinn!
BS gráðan var í höfn þann 25. okt sl en enn er ekki neina vinnu að hafa og ekki virðist ástandið hérna á klakanum ætlað batna eitthvað á næstunni.. í Kastljósinu áðan var m.a. rætt við fólk sem var að klára sína 2. og 3. háskólagráðu og fær ekki vinnu, sorglegt en víst er að það eru margir sem hafa það verr í "ástandinu" núna. Margir sjá það eitt í stöðunni að halda áfram í skóla og safna enn meiri námslánum án þess að reikna endilega með að sú menntun muni nýtast síðar. Ég sá eftir því að hafa ekki skráð mig strax í framhaldsnámið sem ég var hálfheit fyrir sl vor en núna er jafnvel staðan orðin önnur... Því eins og sumir hafa víst frétt af þá erum við Jón farin að hugsa okkur til hreyfings og vonumst til að geta reynt fyrir okkur á atvinnumarkaði erlendis. Það eru nokkur járn í eldinum, en það er líkt og var með blessaða lokaritgerðina, að margur spurði endalaust um stöðuna sem var orðið heldur þreytandi til lengdar, þó ég viti að allir vildu vel! Ég lofa því að þegar eitthvað fréttnæmt gerist í þessum útlanda/vinnumálum að láta vita ;) En þetta er heldur hægfara ferli því miður, helst vildi ég vera farin í gær eða amk að nánasta framtíð væri ekki stanslaust í lausu lofti...

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 20:45:05 / IngaG

Vandræðaleg búðarferð?

Heldur vandræðalegt að vera búin að troða vörum í tvo fulla poka á kassanum í Bónus seinniparts dags þegar sér ekki fyrir endann á biðröð fólks á eftir manni og þá kemur synjun á kortið því það rann út deginum áður 08/08 að mér óafvitandi og útlenska afgreiðslukellingin skilur ekki boffs og kallar til aðra útlenska á kassanum við hliðina sem skilur ekkert frekar, hafa sennilega haldiði að kortið væri stolið eða bara ein djúpt sokkin á fyrsta degi mánaðarins..
Ég nennti ekki aftur út í búð!

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 20:22:38 / IngaG

"...einen Kraftstoff wie Benzin..."

jamm og já, þetta vaknaði ég með á heilanum í morgun.. enda reyndar búin
að vera ansi orkumikill sunnudagur: hjólaði af stað í vinnuna kl. 07:30 og
er jafnframt aðeins byrjuð að þokast út úr ritgerðarþokunni miklu en ég er
búin að vera aaansi mikið illa haldin af lokaritgerðarsjúkdómnum alræmda
undanfarið... :whut: en nú er svo komið að það er að duga eða drepast,
hingað og ekki lengra, þessum fjanda skal skilað á þessari önn!!! Síðasti
dagurinn hjá Fosshótelum í dag og svo fæ ég að prófa að vera atvinnulaus í
fyrsta skipti, sjáum til hvort það hjálpi eitthvað til við ritgerðina...
Skrítin tilfinning við svona tímamót, maður hugsar margt og spyr sig
margra spurninga. Engin svör fengist enn - en þarf maður svo sem á þeim að
halda ..?
31.08.08

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 17:21:25 / IngaG

Draumfarir eigi sléttar ..

Er búin að vera nánast 24/7 í vinnunni sl daga, þar sem að mig hefur verið að dreyma hvað eftir annað eitthvað í vinnunni eða hreinlega bara að ég sé inni tölvukerfinu þar, klárlega ekki gott mál! en annað sem er klárlega gott mál er að vinnutörninni lýkur í kvöld og þá er ég komin í 5 daga frííí!!! Þeim frídögum verður að hluta til vel varið í að ganga Fimmvörðuháls og Laugarveginn  8)
Svo fer haustið alveg að fara að skella á, amk hefur bæði veðráttan hérna í borginni undanfarna daga og dagatalið verið að minna á það... Skrítið, í dag er líka seinasti dagurinn á Garði, svo nokkrar vaktir á þeim Flókna/Flækta og svo er framhaldið óráðið, skuggalega stutt, en ég á nú ekki von á öðru en að þetta fari allt að skýrast á næstu dögum! Sumarið er alltaf of fljótt að líða held ég...
En haustið þýðir líka að farið er að styttast í gurlurnar mínar, jeijjjeijjjeijj - og meira að segja bætist í hópinn þegar hún Soffía leggur land undir fót í enn eitt sinnið og nú í "rétta átt" :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 13:28:06 / IngaG

Ég berst á fáki fráum fram um veg...

Vuhú, skellti mér á gámasölu hjá GAP um helgina og fjárfesti þar í nýjum reiðfák af gerðinni Mongoose - OG LÁS! Nú er bara að koma sér aftur í hjólaform, ekki laust við að botninn sé aumur eftir fyrstu reiðar.. Frábært að geta nú þeyst um göturnar aftur á hjóli, sparar manni t.d. oft nokkrar dýrmætar mínútur á morgnana:lol: Sakna alltaf þess gamla góða sem ég keypti fyrir fermingarpeningana, hef reyndar séð það á götum borgarinnar einum 2 sinnum en hef aldrei náð í rassgatið á "nýja eigandanum", en það kemur að því..:klikk:
Held ég taki þig á orðinu Brynja og fái lánað Grey'sið, helst fyrir helgina þar sem maður er að verða grasekkja :Þ

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 19:39:37 / IngaG

Slugsi ...

Hvernig er það, býr ekki einhver svo vel að eiga fyrstu seríu og e.t.v. meira til af Grey's Anatomy til að lána mér!?!? Ein doltið langt á eftir... hef alveg verið laus við þessa bakteríu en það er ooof erfitt að halda sig að ritgerðinni.. góð rök?! :Þ 

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 09:52:03 / IngaG

Þegar reynitrén snjóa á Akureyri

Átti helgarfrí um seinustu helgi og áskotnaðist svona assgolli fínt bílfar norður svo ég ákvað að skella mér bara, takk fyrir það Gummi&Hulda;) Þar af leiðandi er ég búin að fara 3x norður á stuttum tíma (og þar af 2x í sveitina) = algjört met! Vest hvað þetta eru alltaf miklir skreppir, maður virðist alltaf vera á einhverju spani - fyrir utan svo ferðakostnað og vesen... Þó svo að Norðurlandið hafi upp á margt gott að bjóða og minningarnar margar þá er það fólkið sem skiptir mestu - Mikið óska ég þess oft að hafa fjölskylduna nær; geta skroppið yfir eina kvöldstund, farið í mömmumat, fylgst með yngstu fjölskyldumeðlimunum vaxa úr grasi, verið innan handar osfrv osfrv. Náði líka góðum vinahitting þegar Brennja litla nýorðin töttofemm bauð í afmælisgrill á laugardagskvöldið:haha: 
En aftur mætt á Garðinn, geysp, ég er óendanlega þreytt og svo þreytt á að vera þreytt...

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 19:02:26 / IngaG

Hnjúkurinn 2008

Jæja, og á toppinn komumst við! Fórum úr bænum á fimmtudagskvöldi og prufukeyrðum "nýja" tjaldið (sem var eh, búið að safna ryki í geymslunni í ca ár..) á tjaldstæðinu í Vík. Túrhestuðumst svo á Suðurlandsundirlendinu á föstudeginum; sund á Kirkjubæjarklaustri, upphitunar labbitúr í Skaftafelli, bíltúr að jökulsárlóni og sonna kósýheit. Gistum í Freysnesi (Fosshótel audda..), eða lögðum okkur öllu heldur því það var ræs kl 03:20 og hittum hópinn kl 04:00 og það var haldið af stað fljótlega eftir það! Veðrið var yndislegt allan tíman, glampandi sól og heiðskírt8) og gangan gekk í alla staði mjög vel, varla strengir hvað þá meira daginn eftir:haha: Myndir

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 12:17:41 / IngaG

Bömmer

Sit bara á rassgatinu í vinnunni í stað þess að vera stödd í hæstu hæðum Hnjúksins - göngunni var sem sagt frestað vegna veðurs :( Það verður boðið upp á ferð um næstu helgi og við reiknum með að fara þá í staðinn! En þar af leiðandi er allt dagvaktarplanið hérna í fokki, drasl :/
Sé fram á heljarinnar rasssæri eftir þessa törn, 7 dagar í röð og 12 klst á dag í setu, ekki minn tebolli. Sjálfboðaliðar í rassanudd?!?!

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 17:57:38 / IngaG

Beðmálin

Stelpuferð í bíó í gærkvöldi og að sjálfsögðu var það Sex and the City! Skemmti mér mjög vel yfir þessari ræmu, maður hreinlega stóð á orginu af hlátri á köflum:haha: Hálf skondið að fara í svona kjellingabíó: mættum heldur seint og þurftum að sitja á fremsta bekk, en að koma inn í fullan bíósalinn var eins og í fuglabjörg, troðningur í sjoppuröðinni og eeeendalaus klóssettröð í hléinu.
Gerði fleira skemmtilegt í gær, Íslenskir fjallaleiðsögumenn og Kynnisferðir buðu okkur í vinnunni í ferð á Ölkelduháls og á Sólheimajökul þar sem fólk fékk smá tilsögn í að nota mannbrodda og ísaxir. Rosa flott svæði á Ölkelduhálsi og veðrið líka, tók aðeins af myndum sem kannski verða e-ð settar inn við tækifæri. Þar skein sólin og mývargurinn suðaði og ég náði mér í eitt bit, fallega rautt á gagnaugað! Svo var haldið á jökulinn, væntanlega fínasta upphitun fyrir næstu helgi en þá er stefnan tekin á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk (hálf kjánalegt að hafa komið á hæsta tind Afríku en ekki þann íslenska!) og ég ætla bara rétt að vona að veðurspáin fyrir helgina eigi eftir að batna :frown:

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 12:37:23 / IngaG

Ég vonað ég læri að fljúga í dag, svo ég fari að komast til himnanna..

nananananana himnanna...
Fór á tónleika með Hvanndalsbræðrum á Græna Hattinum á fimmtudagskvöldið, þekkti lítið til þeirra fyrir það en er búin að verað hlusta á þá síðan! Það var sem sagt mjög skemmtilegt; snilldar kjánaprik sem geta rokkað á íslensku og jafnvel á bæði harmonikku og fiðlu :haha:
Nú er bara back to normal, þetta voru 3 góðir frídagar en er komin aftur komin til borgarinnar og sumarvinnan hafin. Ég vonað ég læri að fljúga í dag, ég verð að komast til himnanna...

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 13:19:05 / IngaG

Frídagar :)

Ekki brást veðurblíðan mér hérna fyrir norðan8) En hana má nýta til ýmissa hluta, t.d. alltaf klassísk ástæða til að fara í Brynjuísbúðina.. Svo áttum við Yngvi góðan systkinadag í gær, en ég dró kallinn með mér á Súlur. Það reyndist heilmikill labbitúr í leðjusvaði og snjó (á stutturunum og berhent) en á toppinn fórum við! Heiti potturinn var góður á eftir. Yngvi var fljótur að ná sér í freknurnar og reyndar aðeins meira til, brunarústir! En dagsverkið var annars gott..
Í morgun byrjaði ég daginn á nýsoðnu gæsareggi og rjúkandi góðum kaffibolla úr nýju kaffimaskínunni hans pápa, ekki slæmt það. Tók svo hjólatúr út í Kjarnaskóg (reyndi að villast ekki mikið í nýja hverfinu, það sem menn virðast ætla að byggja hérna fram í rauðan dauðann) og fékk mér labbitúr þar, hef e-ð urge fyrir að fara í handahlaup þegar ég sé græn tún, lét það eftir mér þangað til mig fór að svima...
Tók ekkert ritgerðartengt með mér, bara saklausir frídagar hérna,yndi. Annars skilaði seinasta einkuninn sér loksins í gær, nokk sátt með allt saman þar. Farin að gera e-ð sniðugt:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 10:31:04 / IngaG

Little miss Sunshine

Yndislegt hvað það er komið mikið sumar úti :lol:

http://newsimg.bbc.co.uk/media/images/41500000/jpg/_41500258_littlemisssunshine.jpg


Kilimanjaro verkefnið hefur nú heldur betur undið upp á sig, svo mikið að það stefnir hreinlega í heila bs ritgerð - sem þá jafnframt þýðir að ritgerðin sú er u.þ.b. hálfnuð 8) og svo bara brautskráning í haust... og þá... 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 09:02:36 / IngaG

Stundum borgar sig ekki að vera duglegur!

Vaknaði eldsnemma til að ná í ræktina fyrir vinnu í morgun en varð óvart litið á dagatalið á leiðinni út - rauður fimmtudagur - DJÖ! Og gat svo að sjálfsögðu ekki fest svefninn aftur!

Eina próf þessarar annar var í gær - og var afnframt seinasta prófið í þessum BS áfanga! En guð minn góður hvað ég mikið eftir í verkefna- og ritgerðarskrifum, ætla nú að reynað nota daginn til að grúska e-ð í því líka.

Annars er æðislegt veður úti, held að fólk ætti að nota daginn í einhverja góða útivist, jafnvel bara kröfugöngu og útifund - þ.e. þeir sem ekki eru í vaktavinnu eða prófum... Svo efast ég ekki um að grilllyktin eigi eftir að svífa um ..

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 12:24:58 / IngaG

Strumpar í Strumpabæ, tralallallallalla..

Tók strumpaprófið - eins og allir hinir..
Papa Smurf
hmm og kom smá á óvart!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18